Velunnarar Krabbameinsfélagsins eru þeir sem kjósa að styðja við baráttuna gegn krabbameini með mánaðarlegu framlagi.
Sem velunnari gerir þú okkur kleift að bjóða margvíslega þjónustu, efla fræðslu og forvarnir, rannsóknir og ráðgjöf.
Mánaðarlegur stuðningur er árangursríkasta leiðin til að styðja við baráttuna gegn krabbameini því þannig getur félagið búið við ákveðinn stöðugleika í starfseminni og jafnframt lágmarkað fjáröflunarkostnað. Sem Velunnari hefur þú ávallt yfirsýn yfir þann stuðning sem þú veitir og getur hvenær sem er óskað eftir breytingum eða hætta stuðningi.
Hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins er veitt fjölbreytt þjónusta virka daga kl. 9:00-16:00. Hún snýr að upplýsingagjöf, fræðslu, ráðgjöf og stuðningi við þá sem hafa greinst með krabbamein og við aðstandendur þeirra.
Á árinu 2014 áttu starfsmenn í um fjögurþúsund samskiptum við sjúklinga og aðstandendur auk þess sem um fimmþúsund sóttu rúmlega tvöhundruð fundi, námskeið og ráðstefnur á vegum þeirra. Nánari upplýsingar á www.krabb.is
Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins
Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins var stofnaður í desember 2015 með 250 milljóna stofnfé en þar á meðal eru framlög velunnara og söfnunarfé síðustu ár.
Markmið Vísindasjóðs Krabbameinsfélags Íslands er að efla íslenskar vísindarannsóknir á krabbameinum með því að styrkja rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.
Nánari upplýsingar á www.krabb.is
Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands skráir í einn grunn öll krabbamein sem greinast á Íslandi, gefur út tölfræðiupplýsingar og stundar rannsóknir í samvinnu við innlenda og erlenda vísindamenn auk afgreiðslu umsókna um gögn í þágu rannsókna.
Krabbameinsskráin hefur verið starfrækt af Krabbameinsfélagi Íslands í rúmlega 60 ára og tiltækar eru upplýsingar um greind krabbamein á öllu landinu frá og með árinu 1955.
Nánari upplýsingar um Krabbameinsskrána eru hér; www.krabbameinsskra.is
Velunnarasjóður Krabbameinsfélagsins styður við starf aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands, bæði svæðafélaga og stuðningshópa með árlegum styrkjum til átaksverkefna. Sjóðurinn styrkir rekstur sjö þjónustuskrifstofa á landinu.
Dæmi um verkefni sem styrkt voru af velunnarasjóði:
Í hverjum mánuði eru haldnar ráðstefnur eða fræðslufundir, skrifaðar greinar, gefnir út bæklingar og vandað fræðsluefni á vefsíðu félagsins. Auk þess eru haldin fræðsluerindi í fjölda fyrirtækja og hjá félagasamtökum allt árið um kring.
Hér finnur þú ítarlegt fræðsluefni um krabbamein.