REYNSLUSAGA: BEYGÐI AF OG FÓR AÐ GRÁTA

Þegar Anton Helgi Jónsson, skáld heyrði að hann væri með krabbamein, beygði hann af og fór að gráta. Hann segir alla sjúkdóma sögunnar hafa hellst yfir sig í einu lagi en eftir að hafa andað djúpt hafi hann gert sér grein fyrir í hve góðri stöðu hann væri, miðað við marga aðra.

Anton Helgi hafði legið heima með það sem talið var slæmt kvef og hálsbólga, en var á endanum skutlað upp á heilsugæslu og þaðan beint upp á bráðavakt. Í þeirri vendu fannst krabbamein í vinstri lunga sem leiddi til þess að nokkrum mánuðum síðan fór hann í uppskurð og hóf lyfjameðferð.

„Mér datt í hug einn daginn að horfa á listaverkin sem ég rakst upp á spítala og túlka þau á minn hátt í mínum veikindum“

Með þessu segir hann dvölina á spítalanum orðið eins og að fara á listasafn, það hafi ekki verið leiðinlegt, kalt og dapurlegt heldur eitthvað annað og meira og gefandi.

,,Ég veit að margir gera eitthvað svona, á einn eða annan hátt, til að komast af!

https://youtu.be/SPVF7G6O_yI?si=EPHtZoruX5ZaAftq