Karlahlaup Krabbameins­félagsins

Skráning er í fullum gangi í Karlahlaup Krabbameinsfélagsins. Markmið hlaupsins er að hvetja karlmenn af öllum stærðum og gerðum til að koma saman og hreyfa sig. Þetta fyrsta Karlahlaup markar upphaf Mottumars, árlegs átaksverkefnis Krabbameinsfélagsins sem tileinkað er baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum. 

karlmenn sitja heima sunnudaginn 1. mars

Fyrirhugað var að Karlahlaup Krabbameinsfélagsins myndi marka upphaf Mottumars í ár.

“Vegna verkfalls Eflingar er of mikil óvissa um hvort félaginu sé kleift að halda Karlahlaupið á sunnudaginn eins og fyrirhugað var en félagsmenn Eflingar sjá um lokanir gatna og mokstur á stígum” segir Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagins.

“Þetta er auðvitað afar bagalegt, sérstaklega fyrir alla þá sem höfðu gert ráðstafanir varðandi það að taka þátt í hlaupinu en haft verður samband við alla þá sem hafa skráð sig. Ný dagsetning verður tilkynnt mjög fljótlega en stefnt er að því að hlaupið muni marka lok Mottumars í stað upphafs átaksins eins og ráðgert var enda trúum við því að samningsaðilar hafi þá náð saman. Kosturinn er að nú gefst karlmönnum enn betri tími til undirbúnings fyrir Karlahlaupið.”

Fimm þúsund skref í rétta átt

Hlaupið er frá Hörpu, miðstöð menningar og mannlífs og einu helsta kennileiti Reykjavíkur. Hlaupið verður ræst kl. 11:00 og hlaupið eða gengið sem leið liggur austur eftir Sæbraut og til baka, alls 5 kílómetra. Hlaupið hentar bæði reyndum hlaupurum og þeim sem kjósa að fara hægar yfir - hvað sem þátttakendur velja sér. Eitt er víst að allir geta notið útsýnis yfir hafið og munu sannarlega taka fjölmörg skref í rétta átt.

ÓKEYPIS UNDIRBÚNINGSNÁMSKEIÐ

Fyrr í febrúar var boðið upp á ókeypis undirbúningsnámskeið þar sem farið var yfir það helsta sem þarf að hafa í huga í tengslum við hlaup og hvernig best er að fara af stað. 

NÝIR GLÆSILEGIR MOTTUMARSSOKKAR INNIFALDIR Í ÞÁTTTÖKUGJALDI

Þátttökugjald er 4.500 kr. fyrir 18 ára og eldri en 2.500 kr. fyrir yngri en 18 ára. Innifalið er eitt glænýtt par af Mottumarssokkum, hannað af Gunnari Hilmarssyni, yfirhönnuði Herrafataverzlunar Kormáks og Skjaldar. Sokkarnir eru til í fjórum stærðum sem henta öllum aldurshópum. Allur ágóði af hlaupinu rennur til Krabbameinsfélagsins. Allir þátttakendur geta fengið tímatöku með flögu og birtan tíma en það er valkvætt.

Athugið að þátttökugjaldið hækkar eftir miðnætti föstudaginn 28. febrúar og verður kr. 5.500 fyrir fullorðna og kr. 3.500 fyrir börn.

Afhending hlaupagagna

Afhending hlaupagagna fer fram daginn fyrir hlaupið á milli kl. 13-15 í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 og frá kl. 9-10:30 í Hörpu á hlaupadag.

Karlahlaupid2020-kortid

Regluleg hreyfing minnkar líkur á krabbameinum

Reglubundin hreyfing hefur ótvírætt gildi fyrir almenna heilsu og vellíðan og ávinningurinn er margþættur. Má til dæmis nefna minni hættu á margvíslegum sjúkdómum, þar með talið krabbameinum. Áætlað er að Evrópubúar sem temja sér heilbrigða lífshætti í samræmi við ráðleggingar um forvarnir gegn krabbameini séu í 18% minni hættu á að fá krabbamein miðað við þá sem tileinka sér ekki slíka lífshætti.* Í því felst að hreyfa sig að minnsta kosti hálftíma á dag. Karlahlaup Krabbameinsfélagsins er kjörinn vettvangur fyrir karla að koma saman, taka þátt í skemmtilegum viðburði og styðja við gott málefni.

Klíkur af öllum stærðum og gerðum, gengi, vinahópar, félagsmenn og fleiri hópar eru hvattir til að mæta undir eigin „flaggi og fána” og setja þannig skemmtilegan svip á þennan tímamótaviðburð.

Um Mottumars

Meginmarkmið Mottumars er að vekja athygli á baráttunni gegn krabbameinum hjá karlmönnum. Átakið er hvatning fyrir alla karlmenn og fjölskyldur þeirra til að vera meðvitaða um einkenni krabbameina og sinna forvörnum, sem og að afla fjár sem gerir Krabbameinsfélaginu kleift að sinna fræðslu, forvörnum, rannsóknum, ráðgjöf og stuðningi fyrir karlmenn.

Nánari upplýsingar:

Hlaupalogo-1