Mottumars 2024

Hefur þú þörf fyrir stuðning og spjall?

Hjá  Krabbameinsfélaginu geta aðstandendur fólks sem greinst hefur með krabbamein fengið ýmsar upplýsingar, ráðgjöf og stuðning.

Það er flestum áfall þegar ástvinur greinist með krabbamein.  Þá er algengt að hugsanir og tilfinningar af ýmsum toga geri vart við sig.  Þú gætir upplifað ýmislegt sem tengist því að verða fyrir áfalli, eins og örvinglan, sorg, vonbrigði, afneitun, dofa, erfiðleika við einbeitingu. Einnig gætirðu upplifað svipaðar tilfinningar og sýnt svipuð viðbrögð og sá sem greinist með krabbamein.

Við þessar aðstæður gæti verið hjálplegt að rifja upp þau bjargráð sem hafa gagnast þér vel áður og jafnvel þiggja aðstoð eða stuðning úr nærumhverfinu, en það getur verið stórt skref fyrir marga.  

Hafa ber í huga að það getur verið misjafnt hvenær og hvort þörf fyrir stuðning skapast í veikindaferlinu. Stundum gerist það ekki fyrr en að meðferð er lokið og við tekur að melta allt það sem á undan er gengið. Það getur verið að þörfin fyrir stuðning og úrvinnslu komi ekki fram fyrr nokkuð langt er liðið frá veikindunum eða ef þau taka sig upp aftur.

Krabbameinsfélagið býður upp á fræðslu, upplýsingar, ráðgjöf og stuðning við aðstandendur hvort sem ástvinur er nýgreindur með krabbamein eða er með langvinnan sjúkdóm. 

Við erum til staðar þegar á þarf að halda. Markmið okkar er að aðstoða fólk við að ná jafnvægi við breyttar aðstæður í lífinu, veita stuðning og nauðsynlegar upplýsingar. Hjá okkur fá aðstandendur ráðgjöf og fræðslu um þann fjölbreytta stuðning og þjónustu sem í boði er.

Þjónustan er öllum opin og hægt er að koma án þess að gera boð á undan sér. Hægt er að hafa samband við starfsmenn  í tölvupósti á netfangið radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040 alla virka daga til að spjalla eða bóka tíma hjá hjúkrunarfræðingi , sálfræðingi eða para- og kynlífsráðgjafa.

Kynntu þér fræðsluefni fyrir aðstandendur.