Upphafsviðburður mottumars

Mottumarshlaupið verður haldið í fyrsta sinn á hlaupársdag, 29. febrúar, dagskrá hefst kl. 17:30 en hlaupið verður ræst kl. 18. Hlaupið verður frá Fagralundi í Kópavogi um Fossvogsdalinn.

KRA_16474_Fb_Cover_A_930x500_x2

Hlaupið markar upphaf Mottumars og er haldið á hlaupársdag, fimmtudaginn 29. febrúar. Dagskrá hefst kl. 17:30 þar sem Eva Ruza og Hjálmar Örn munu koma þátttakendum í rétta gírinn fyrir hlaupið sem verður ræst kl. 18:00. Hlaupið hefst og lýkur við Fagralund í Kópavogi og liggur hlaupaleiðin um Fossvogsdalinn. Boðið er upp á 5 km löglega mælda braut, með eða án tímatöku. Einnig er boðið upp á að fólk hlaupi eða gangi styttri vegalengd, allt eftir getu hvers og eins, án tímatöku. Boðið verður upp á upphitun fyrir hlaup og léttar veitingar að loknu hlaupi. 

Eva-og-Hjalmar

Hvar skrái ég mig?

Skráningargjald er 5.000 krónur fyrir 12 ára og eldri, Mottumarssokkar fylgja með, og 1.500 krónur fyrir börn 11 ára og yngri, Mottumarsbuff fylgir með. 

Þátttakendur fá frítt í sund í Kópavogslaug, við Borgarholtsbraut, að hlaupi loknu.

Hlaupagögn verða afhent þann 28. og 29. febrúar hjá Krabbameinsfélaginu, Skógarhlíð 8 milli kl. 09:00 - 16:00.

Fjöldi útdráttarverðlauna í boði og enn er að bætast við:

  • Laugar spa – gjafabréf í baðstofuna.
  • Sky Lagoon - 2 x Sky gjafabréf og 2 x Pure gjafabréf
  • Train station – 4 x 3 mánaðarkort
  • Sportvörur – 2 x gjafabréf að verðmæti 10.000 kr.
  • Eirberg - Altra FWD Experience hlaupaskór
  • Hvammsvík – 5 x gjafabréf með aðgangi fyrir tvo.
  • Serrano - 4 x gjafabréf.
  • Unbroken - gjafapoki.
Skráning

https://www.youtube.com/watch?v=nnjWBctWGN0

Er þetta eitthvað fyrir mig?

Hlaupið hentar öllum, ungum og öldnum, reyndum hlaupurum og þeim sem eru óvanir eða jafnvel að stíga sín fyrstu skref í almenningshlaupi. Hægt er að hlaupa hratt og hægt, ganga alla leið eða blanda saman göngu og hlaupum og meira að segja stytta sér leið. Tímataka er í boði fyrir þá sem það vilja. Aðal málið er að þú takir þátt á þínum forsendum.

Hvernig undirbý ég mig?

Besti undirbúningurinn er einfaldlega að reima á sig skóna og fara út að ganga eða skokka! Betra er að fara rólega af stað og hreyfa sig daglega (eða næstum því) heldur en að fara of geyst og lenda í ógöngum.

Þarf ég sérstakan vetrarbúnað?

Hlaupið verður í Fossvogsdalnum, bæði Reykjavíkur- og Kópavogsmegin, sem verður ruddur og saltaður ef aðstæður krefjast þess en auðvitað vonumst við eftir góðu veðri og auðum stígum. Það ætti vel að duga að vera í venjulegum íþróttaskóm eða utanvegahlaupaskóm ef þú átt slíka. Ef þér finnst öruggara að vera með brodda undir skónum skaltu ekki hika við það. Þú þarft hvorki að fjárfesta í utanvegahlaupaskóm með vatnsvörn og grófum botni, hlaupabroddum né endurskinsvesti fyrir sjálft Mottumarshlaupið, þó það gæti komið sér vel í undirbúningnum eða ef þú heldur áfram að hlaupa/ganga í kjölfarið.

Hvernig á ég að klæða mig?

Klæddu þig í hvaða íþróttaföt sem þér líður vel í, en taktu veðrið þann 29. febrúar með í reikninginn. Líklegt er að þér hitni eitthvað á leiðinni og algengustu mistökin eru að klæða sig of mikið. 

Mottumars-5K_1000_hlaupakort-minna-copy

Bílastæði

Við hvetjum öll sem ætla að koma og hlaupa eða hvetja hlaupara að mæta tímanlega. Dagskrá hefst kl. 17:30. Takmarkað er af bílastæðum við Fagralund, en hægt er að leggja við Fossvogsskóla og ganga yfir í Fagralund eða við Víkingsheimilið og rölta/skokka yfir.

Við lofum stuði og stemmningu um leið og við hreyfum okkur til stuðnings góðum málstað!

Við hvetjum þig til að taka þátt í Mottumarshlaupinu og hvetja þitt fólk til að taka þátt líka. Skráðu þig núna í hlaupið!

Aðalverðlaunin eru að taka þátt og við vonumst auðvitað til þess að Mottumarshlaupið nýtist þér sem hvatning til áframhaldandi hreyfingar. Regluleg hreyfing er mikilvægur þáttur í að draga úr líkum á krabbameinum!

Fjölmennum í Mottumarshlaupið!

Skráning