Bregðumst við einkennum

Mottumars 2022

Bregðumst við einkennum

Þekkir þú einkennin?

Það er ekki að ástæðulausu sem Krabbameinsfélagið heldur áfram að hvetja karlmenn sérstaklega til að þekkja og bregðast við hugsanlegum einkennum krabbameina. Nýleg rannsókn félagsins meðal fólks á Íslandi sem greinst hefur með krabbamein sýndi að margir karlar leituðu seint til lækna þó þeir fyndu fyrir einkennum sem svo reyndust eiga rót sína að rekja til krabbameins.

Hátt í helmingur karla sem greindist með krabbamein eftir að hafa fundið fyrir einkennum beið í þrjá mánuði eða lengur með að leita til læknis og 14% þeirra biðu í meira en ár. 

Það getur skipt miklu máli varðandi horfur að krabbamein séu greind fljótt ef einkenni gera vart við sig og því skiptir máli að þekkja þau og bregðast við þeim.  

Ertu með allt á hreinu? Taktu einkennaprófið

Helstu einkenni sem geta bent til krabbameins:

-Óvenjuleg blæðing
-Þykkildi eða hnútar
-Óútskýrt þyngdartap
-Þrálátur hósti eða hæsi
-Langvarandi kyngingarerfiðleikar
-Sár sem ekki gróa
-Breytingar á hægðum eða þvaglátum
-Nýir fæðingarblettir eða breytingar á blettum
-Langvarandi óþægindi frá meltingarvegi
-Óvenjuleg þreyta
-Viðvarandi verkir

Ef þú finnur fyrir einhverju þessara einkenna lengur en í 3-4 vikur ættir þú að panta tíma hjá lækni.

Hafðu samt í huga að einkennin gætu átt sér ýmsar skýringar aðrar en krabbamein. 

Sjá nánar um einkenni krabbameina á vef Krabbameinsfélagsins.

 

Við minnum líka á Heilsuráð Mottumars frá 2020 - þau eiga alltaf við. 
Farðu eftir þeim til að efla heilsu þína og draga úr líkum á krabbameinum. 

Heilsuráð Mottumars - veggspjald A4 - íslenska

Heilsurad