Velunnarar Krabbameins­félagsins eru þeir sem kjósa að styðja við baráttuna gegn krabbameini með mánaðarlegu framlagi. 
Sem velunnari gerir þú okkur kleift að bjóða margvíslega þjónustu, efla fræðslu og forvarnir, rannsóknir og ráðgjöf.

Mánaðarlegur stuðningur er árangursríkasta leiðin til að styðja við baráttuna gegn krabbameini því þannig getur félagið búið við ákveðinn stöðugleika í starfseminni og jafnframt lágmarkað fjáröflunarkostnað. Sem Velunnari hefur þú ávallt yfirsýn yfir þann stuðning sem þú veitir og getur hvenær sem er óskað eftir breytingum eða hætta stuðningi.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins

Hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins er veitt fjölbreytt þjónusta virka daga kl. 9:00-16:00. Hún snýr að upplýsingagjöf, fræðslu, ráðgjöf og stuðningi við þá sem hafa greinst með krabbamein og við aðstandendur þeirra.

Á árinu 2014 áttu starfsmenn í um fjögurþúsund samskiptum við sjúklinga og aðstandendur auk þess sem um fimmþúsund sóttu rúmlega tvöhundruð fundi, námskeið og ráðstefnur á vegum þeirra. Nánari upplýsingar á www.krabb.is

Rannsóknir

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins
Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins var stofnaður í desember 2015 með 250 milljóna stofnfé en þar á meðal eru framlög velunnara og söfnunarfé síðustu ár.

Markmið Vísindasjóðs Krabbameinsfélags Íslands er að efla íslenskar vísindarannsóknir á krabbameinum með því að styrkja rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.

Nánari upplýsingar á www.krabb.is

Krabbameinsskráin

Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands skráir í einn grunn öll krabbamein sem greinast á Íslandi, gefur út tölfræðiupplýsingar og stundar rannsóknir í samvinnu við innlenda og erlenda vísindamenn auk afgreiðslu umsókna um gögn í þágu rannsókna.

Krabbameinsskráin hefur verið starfrækt af Krabbameinsfélagi Íslands í rúmlega 60 ára og tiltækar eru upplýsingar um greind krabbamein á öllu landinu frá og með árinu 1955.

Nánari upplýsingar um Krabbameinsskrána eru hér; www.krabbameinsskra.is

Velunnarasjóður Krabbameinsfélagsins

Velunnarasjóður Krabbameins­félagsins styður við starf aðildar­félaga Krabbameinsfélags Íslands, bæði svæðafélaga og stuðningshópa með árlegum styrkjum til átaksverkefna. Sjóðurinn styrkir rekstur sjö þjónustuskrifstofa á landinu.

Dæmi um verkefni sem styrkt voru af velunnarasjóði:

  • Þýðing og staðfærsla á fræðsluefni fyrir vef fyrir þá sem eru nýlega greindir með krabbamein í blöðruhálskirtli. Efnið var unnið í samvinnu við stuðningshópana Góðra hálsa og Fríska menn .
  • Niðurgreiðsla á fjölbreyttu námskeiðahaldi aðildarfélaga s.s. jóga, endurhæfing, slökun, handavinna o.fl.
  • Niðurgreiðsla á orlofsdvöl fyrir krabbameinssjúklinga á Norðurlandi.
  • Starfsendurhæfingarnámskeið á Austurlandi.
  • Samstarfsverkefni við Rauða krossinn um stuðning við sjúklinga (Brosið).
  • "Kastað til bata" er verkefni á vegum Brjóstaheill -Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélagsins og styrktaraðila, þar sem konum er boðið til veiðiferðar.
  • Endurhæfingarverkefnið FítonsKraftur er endurhæfing í formi hreyfingar og útvistar fyrir ungt fólk á aldrinum 18 - 40 ára sem greinst hefur með krabbamein.

Fræðsla og forvarnir

Í hverjum mánuði eru haldnar ráðstefnur eða fræðslufundir, skrifaðar greinar, gefnir út bæklingar og vandað fræðsluefni á vefsíðu félagsins. Auk þess eru haldin fræðsluerindi í fjölda fyrirtækja og hjá félagasamtökum allt árið um kring.

  • Félagið gefur út fjölda fræðslurita sem eru aðgengileg á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum og dreift á vegum félagsins.
  • Félagið heldur fræðslufundi og ráðstefnur um ýmis málefni tengd krabbameini og stuðningi við sjúklinga, aðstandendur og til að auka þekkingu heilbrigðisstarfsfólks.
  • Félagið heldur úti vandaðri vefsíðu með yfirgripsmiklu fræðsluefni um krabbamein sem unnið er í samstarfi við fagaðila.
  • Félagið sinnir fræðslu og forvörnum í árveknisátökum eins og Mottumars og Bleiku slaufunni á hverju ári.
  • Starfsmenn halda fræðsluerindi og kynningar víða í samfélaginu eins og í fyrirtækjum og hjá félagasamtökum.

Hér finnur þú ítarlegt fræðsluefni um krabbamein. 

:: GERAST VELUNNARI