Mottumarssokkarnir í ár eru hannaðir af íslenska hönnunarfyrirtækinu AS WE GROW. Gréta Hlöðversdóttir, Snæfríð Þorsteins og Kamilla Henriau eru hugmyndasmiðirnir og hönnuðirnir á bakvið sokkana.

Á hverju ári framleiðir og selur Krabbameinsfélagið Mottumarssokka með nýrri hönnun Mottumarssokkarnir í ár eru hannaðir af íslenska hönnunarfyrirtækinu AS WE GROW. 

Hönnun sokkanna byggir á Mottumarsskegginu og hefðbundnu litaþema átaksins. Símynstri sem vísar í þá staðreynd að einn af hverjum þremur karlmönnum greinist einhvern tímann á lífsleiðinni með krabbamein.

Mottumarssokkarnir í ár eru hannaðir af íslenska hönnunarfyrirtækinu AS WE GROW. Gréta Hlöðversdóttir, Snæfríð Þorsteins og Kamilla Henriau eru hugmyndasmiðirnir og hönnuðirnir á bakvið sokkana.

 „Af virðingu fyrir veröldinni” er leiðarstef AS WE GROW og hentar fatnaður vörumerkisins við fjölbreytt tilefni, jafnt hversdags sem spari. Við trúum á mikilvægi þess að framleiða fallegan og tímalausan fatnað sem endist lengur. Þannig hugsum við alla okkar hönnun og þróuðum sokkana út frá því” segir Gréta.

„Það skiptir máli að hönnuðir séu bæði greinendur og gerendur, að það sé ástæða á bak við af hverju hlutirnir eru gerðir“ segir Snæfríð. Hönnun sokkanna byggir á Mottumarsskegginu sem hefur í ár tekið á sig abstrakt yfirbragð og myndar glaðlegt símynstur í hinu hefðbundna litaþema átaksins. Símynstrið vísar í þá staðreynd að einn af hverjum þremur karlmönnum greinist einhvern tímann á lífsleiðinni með krabbamein. Þegar við klæðumst sokkunum sýnum við ekki einungis stuðning í verki heldur minnum við okkur líka á hve málið er brýnt og varðar okkur einfaldlega öll.

Greta-og-Snaefrid-2024

Verkefni með alvarlegan boðskap

„Það var mjög ánægjulegt og gefandi að vinna að þessu verkefni, víkja aðeins frá hefðbundnu náttúrulegu litunum sem einkennt hafa okkar vörur undanfarin ár og gera aðeins ýktari útgáfu” segir Snæfríð.

Snæfríð bætir við „það sem er merkilegt við þetta verkefni er að þrátt fyrir þetta alvarlega viðfangsefni var þessi ótrúlega gleði í allri samvinnunni“.

Þegar við klæðumst sokkunum sýnum við ekki einungis stuðning í verki heldur minnum við okkur líka á hve málið er brýnt og varðar okkur einfaldlega öll.

Verkefnið hefur líka persónulega þýðingu fyrir Grétu en faðir hennar fékk krabbamein sem hann komst yfir. Hún er ein af þeim sem greinir þann mikla mun sem hefur orðið, með mikilli vitundarvakningu og gefur fólki von í dag, sem síður var til staðar áður fyrr.

Sala Mottumarssokkanna

Sokkarnir hafa fest sig rækilega í sessi og margir bíða í ofvæni á hverju ári, eftir að sjá sokka ársins.

Sala Mottumarssokkanna hefst 29. febrúar í vefverslun Krabbameinsfélagsins, hjá AS WE GROW og á hátt í 400 sölustöðum um land allt.