Leggðu rækt við heilsuna
Engar töfralausnir eru til sem uppskrift að heilbrigðu lífi. En til eru viðurkenndar leiðir til að auka lífsgæði með því að sinna grunnþörfunum fjórum sem eru næring, hreyfing, svefn og hugrækt. Auk þess byggist heilbrigt líf á því að reykja ekki, nota ekki tóbak og gæta hófs í neyslu áfengis og verja sig fyrir útfjólubláum geislum.
Hér eru einfaldar og aðgengilegar upplýsingar um næringu, hreyfingu, svefn og hugrækt sem byggja á gagnreyndum rannsóknum. Með því að sinna grunnþörfunum okkar skapast oft jákvæðar aðstæður sem leiða til hreysti og vellíðunar. Allir sem vilja bæta líf sitt geta nýtt sér þessar ráðleggingar.
HREyfing
Regluleg markviss hreyfing er nauðsynleg til að viðhalda heilbrigðum líkama og eðlilegum efnaskiptum. NÁNAR UM HREYFINGU.
NÆring
Líkaminn er eins og stór verksmiðja sem þarf á fjölbreyttum næringarefnum að halda fyrir starfsemi sína. NÁNAR UM NÆRINGU
Svefn
Góður svefn er ein mikilvægasta undirstaða lífgæða. Svefntruflanir geta leitt til depurðar og þeir sem eru svefnvana eru líklegri til að leita í hitaeiningaríkt og óhollt mataræði. Til langs tíma geta svefntruflanir leit til ýmissa sjúkdóma. NÁNAR UM SVEFN
Hugsanir
Að vera við góða andlega heilsu getur aukið velgengni í daglegu lífi og vinnu, bætt samskipti og aukið heilbrigði almennt. NÁNAR UM HUGSANIR