Krabbameinsfélagið býður upp á fræðslu, viðtöl, faglega ráðgjöf, djúpslökun, ýmis námskeið og hagnýtar upplýsingar fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein.
Algengar ástæður þess að fólk nýti sér ráðgjöfina:
- Ég meðtók ekki allar upplýsingarnar sem ég fékk á spítalanum í dag.
- Ég finn fyrir depurð.
- Ég þarf að koma athugasemd á framfæri.
- Ég finn fyrir kvíða.
- Ég upplifi sorg.
- Ég finn fyrir vanlíðan eftir lyfjameðferðina/geislameðferðina.
- Ég hef áhyggjur af fjárhagnum.
- Ég er aðstandandi og þarf stuðning og ráðleggingar.
- Mig vantar upplýsingar um þjónustu, stuðning og réttindamál.
- Mig vantar ráðleggingar varðandi líkamleg einkenni og óþægindi.
- Ég þarf fræðslu um hvernig ég ræði við börnin mín um krabbamein.
- Ég fékk slæmar fréttir í dag og þarf tala við einhvern.
- Ég þarf ráðleggingar varðandi lyfin mín.
- Ég óttast að ég sé með krabbamein.
- Mig langar að vita hvað ég get gert til draga úr líkum á krabbameini.
- Ég þarf upplýsingar tengdar skimun vegna krabbameinssjúkdóma.
Hringdu í síma 800 4040 og spjallaðu við okkur um það sem þér liggur á hjarta. Stundum er gott að ræða málin við utanaðkomandi aðila.