Leiðbeiningar:
Hér geturðu hlaðið niður leiðbeiningum sem PDF
Þú byrjar á að fara inn á www.mottumars.is og fara í nýskráningu.

Síðan velurðu að skrá þig sem Einstakling.

Þú fyllir út upplýsingar um þig:

Og ýtir svo á Ljúka skráningu
Hér geturðu svo sett inn fleiri myndir skráð þig í lið og stofnað nýtt lið. Athugið að hver keppandi getur einungis verið í einu liði. Og keppendur geta bæði fengið áheit á sig sjálfa sem og fyrir liðið.

Ef þú ert að stofna lið þá fyllirðu þar út allar upplýsingar og getur svo deilt með félögum þínum að þú hafir stofnað lið.

Nú er síðan þín komin í loftið og þú getur hvatt vini þína og ættingja að fara inn á hana og heita á þig. Þú getur sent þeim síðuna með tölvupósti, twitter eða á Facebook. Þau geta svo ýtt á Like til að sýna að þau styðji við þig og hvetja aðra vini og ættingja og þannig koll af kolli.
Þú getur svo alltaf komið aftur inn með því að fara í innskráningu og fyltl inn breytt og bætt alveg eins og þér hentar og ýtir alltaf bara á Vista til að breytingarnar haldist inni.


Gangi þér vel