Hvað gera forvarnir?
Þegar menn er komnir yfir fertugt aukast líkurnar á því að fá krabbamein. Því er mikilvægt að þekkja almenn einkenni. Við leggjum því áherslu á að kynna einkenni algengustu krabbameina og að auka umræðuna í þjóðfélaginu, því krabbamein er ekki feimnismál. Einnig leggur Krabbameinsfélagið sérstaka áherslu á að hafin verði ristilkrabbameinsleit.
Hvað getur þú gert?
Smábreytingar í daglegu lífi, málið snýst ekki bara um krabbamein heldur almennt betra heilsufar og líðan. Hægt er að koma í veg fyrir að minnsta kosti 1 af hverjum 3 krabbameinum með breyttum lífsstíl.
Vertu vakandi fyrir einkennum og þekktu líkama þinn. Ef einkenni koma fram og eru ekki horfin eftir þrjár til fjórar vikur ættir þú að leita til læknis.
Fjármunir sem safnast í átakinu Karlmenn og krabbamein verða notaðir í rannsóknir, forvarnir, stuðning og ýmis önnur verkefni sem tengjast baráttunni við krabbamein í karlmönnum. Hér á heimasíðunni getur þú stofnað þína eigin fjáröflun til styrktar málefninu. Hér getur þú hvatt vini og kunningja til þess að leggja málefninu lið. Einnig er hægt að styrkja Krabbameinsfélagið með því að gerast Velunnari félagsins. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins
www.krabb.is.
Hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins er hægt að leita svara við spurningum af öllu tagi um krabbamein, bæði að kostnaðarlausu og nafnlaust. Gjaldfrjáls símaráðgjöf er í síma 800 4040. Netfangið er
8004040@krabb.is.