Það eru fáar sem engar reglur.
Herferðin er í mars 2011. Það er niðurtalning efst á síðunni, þ.e. hversu margir dagar, klukkustundir og mínútur eru eftir af keppninni.
Mottumarskeppninni líkur formlega klukkan 19:50 fimmtudaginn, 31.3.2011 og verður þá ljóst hverjir eru í efstu þremur sætunum í bæði liða- og einstaklingskeppninni og verða þá veitt viðurkenningin Mottan 2011. Að sjálfsögðu verður tekið við framlögum eftir 19:50 en þau verða samt sem áður ekki gjaldgeng í keppnina þar sem henni verður formlega lokið 19:50 þann 31. mars 2011.
Safnaðu mottu og reyndu að vekja athygli vina og vandamanna og annara samborgara á málefninu. Haltu þig innan velsæmismarka, lifðu heilbrigðu lífi og þekktu algengustu einkenni krabbameina. Mundu einnig að hafa skal gát í nærveru sálar.
Saman getum við haft áhrif.
Gangi þér vel.